2010-07-28
Skýjabakki
Ráðhúsið í Osló séð frá Aker brygge. Sama dag tók ég aðra mynd af klukkunni þarna. Af óskiljanlegum ástæðum komst hún í
ferðahandbók á netinu
.
i
Það voru ekki margir bæklingar í upplýsingakassanum í Jelling.
Strætóskýli
Þetta glaðlega strætóskýli sá ég á Jótlandi (á leiðinni til Jelling). Maður færi áreiðanlega ekki í vont skap af því að bíða eftir strætó þarna.
Gyllt þakskegg
Eitt af uppáhaldsmótífum mínum eru húsþök. Þessi turn stendur við Den gamle by í Árósum.
Trappa
Tröppur hafa alltaf heillað mig. Alla vega síðan ég datt niður tröppurnar í MH 1991 og fótbraut mig. Þessar eru á t-banestöðinni Ryen í Osló og mér finnst blái liturinn efst fallegur.
Amba$$ador blvd
Ég man eftir því að hafa einhvern tíma heyrt söguna af tilurð Ambassador Blvd. en ég er búinn að gleyma henni.
Smurt
Það er mikilvægt að nota rétt vax á skíðin og þá er svei mér gott að hafa svona hitamæli!
Senare inlägg
Äldre inlägg
Startsida
Prenumerera på:
Inlägg (Atom)