Þetta veggspjald hékk uppi á vegg í verkstæði tendaföður míns en áður en ég náði að betla það út úr honum gaf hann hárgreiðslumeistaranum í þorpinu það svo hann gæti stillt því út í gluggann á hárgreiðslustofunni sinni ... ég hefði annars hengt það upp í stofunni heima. Jafnfalleg auglýsingaskilti eru vandfundin nú á tímum.Mér hefur því miður ekki tekist að hafa upp á sögu Hylins. Þessi auglýsing um Hylins olíusjampó, sem var mest selda sjampó í Svíþjóð, birtist 1963.