2011-02-21

Svíakonungar

Sænsku tinkonungarnir frá Kulturen eru komnir af eldhúsviftunni í Amagerhilluna sem flaug upp á vegg þar sem teakklukkan hafði hangið áður. Þeir fá félagsskap af nunnunum okkar tveim, Systur Playmobil og Systur Sesselju sem kom gefins frá Kanarí.

Læt fljóta með mynd af klukkunni atarna sem við keyptum í rykugum kjallara á fimm kall.

8 kommentarer:

Þórdís Gísladóttir sa...

Flott dót - klukkan algjör dúndurgræja.

ella sa...

Afar skemmtilegt að sjá svona byrjandi nunnusafn.

Anonym sa...

ég skil nú ekki svona tindátahneigð, en klukkan er massafín.

Anonym sa...

þetta var ég, baun

krummi sa...

Já, já, þú ert alltaf jafnhress, baun.

Hvort okkar safnar postulínshundum?

ella sa...

Það er nú sitthvað postulín og tin :)
Ég veit annars út frá baukareynslu minni að það er miklu skynsamlegra að safna einhverju sem er frekar smágert og helst ekki mjög algengt.

baun sa...

Gunnar. Ég á tvo postulínshunda. TVO.

krummi sa...

Já, og þeir eru æðislegir postulínshundarnir þínir tveir. Ég dauðöfunda þig.

Ég hef enga tindátahneigð. Ég hef áhuga á kóngafólki.