Maður vill ekki vera eftirbátur
annarra og merkilegri gúrúa. Þess vegna safnaði ég nokkrum af vösum heimilisins á skenkinn og tók mynd af þeim. Þennan græna fengum við í sumar hjá tengdó. Hann er merktur
Eneryda Glasbruk. Brúnguli vasinn er
Bambu eftir Bo Borgström á Åseda Glasbruk. Hitt veit ég ekki hvað er, enda hef ég lítið vit á svona verðmætum.
7 kommentarer:
Snoturt er það. Er ekki svona glerdót yfirleitt ómerkt og erfitt að sjá hvaðan það er?
Ekki ef maður sé Þórdís. Þá getur maður haft uppi á öllu.
Seiseise. Svo eru spjallrásir um gamalt drasl víða á internetinu. Bambú-vasinn er allavega frá Aseda og hannaður af Bo Borgström.
Úff ... ert' ekki til í að grúska í draslinu mínu næst þegar þú kemur heim og losa mig við eitthvað í leiðinni.
Mystir
Skenkur er ljótt orð.
Þú kannt ekki gott að meta, systir góð.
Skicka en kommentar